Heim] Ættforeldrar ] Niðjatal ] Myndir ] Myndasafn ] Stafrófsröð ] Afmælisdagar ] Um niðjatalið ]

Um niðjatalið
 

Niðjatalið varð fyrst til fyrir 2. ættarmótið í Skorradal 1996, var uppfært fyrir mótið á Ströndum 1999 og aftur fyrir ættarmótið 2002. Fyrri útgáfurnar báru heitin Ættarmót afkomenda Guðjóns Ólafssonar og Margrétar Gísladóttur frá Þórustöðum í Bitru, ættarmót 2 haldið í Skorradal í júlí 1996, og Niðjatal Guðjóns Ólafssonar og Margrétar Gísladóttur frá Þórustöðum í Bitru.

Ekki er víst að allar upplýsingar séu rétt færðar inn eða að þær séu með öllu réttar. Þess er vænst að leiðréttingum verði komið til umsjónarmanns. Textinn um ættforeldrana er nánast óbreyttur úr útgáfunni 1996. Myndir á vefnum eru bæði ættarmyndir og ættarmótsmyndir. Netútgáfa þessi er fyrst sett upp í júlí 1999. Í niðjatalinu 1999 segir: "Netið er eitt helsta tæki upplýsingasamfélagsins nú og í næstu framtíð. Upplýsingar sem stöðugt þarf að uppfæra henta vel til birtingar á netinu. Stöðugt fleiri hafa greiðan aðgang að netinu og verður ekki annað séð en að flest heimili í landinu verði tengd netinu innan fárra ára. Það er hugmynd undirritaðs að færa niðjatal okkar inn á netið og halda því þar til frambúðar. Auðvelt verður að senda inn nýjar upplýsingar og myndskreytingar verða einfaldar. Alltaf má svo prenta niðjatalið út fyrir þá sem heldur kjósa að skoða það á prenti..."

Leitast verður við á vef þessum að fylgja þeirri stefnu sem fram kemur að ofan og vonandi er að niðjar allir njóti vel. Vefurinn er með læsingu þar sem nota þarf aðgangsorð sem niðjar einir eiga rétt á. Læsingin hindrar þannig að mestu að óviðkomandi komist á vef okkar en hún er þó engan veginn örugg. Nýjar upplýsingar, skemmtilegar myndir og athugasemdir má senda umsjónarmanni á tölvupósti eða með öðrum hætti. Hann velur, breytir og bætir í eftir atvikum.

Síðasta uppfærsla á niðjatalinu var 2002.
Nýrri upplýsingar um afkomendur eru því litlar ef nokkrar eftir þann tíma.
Bent skal á að Íslendingabók svarar mjög vel öllum upplýsingum.

Vefslóð síðunnar er: http://www.skulaskeid.is/thorustadir/index.htm

MG